«
Saturday | October 27th, 2007
Gubb!Pjeh!Kommon!Tjah!Mmmjá!Ókei!Tíhíhí!WAAAA!HAHAHAHA!!ÆÐI!!!!!! (19 votes, average: 1.58 out of 10)
Loading ... Loading ...
Láttu vini vita af Sjonna! Láttu vini vita af Sjonna!

Súper Sjonni Nr.1 á FaceBook!

Súper Sjonni Nr.1 (birtist fyrst í maí 2000) er nú
dánlódanlegur á PDF formi á FaceBook síðu Sjonna!

 

Ertu á FaceBook? Viltu fá Sjonnabók að gjöf?

October 26th, 2007

Sjonni hefur opnað Sjonna-Klúbb á FaceBook-samfélaginu og býður þér að koma og taka þátt.

Ef þú skráir þig í Sjonna-Klúbbinn og gerist félagi …eða eins og Færeyingarnir segja; verður ‘gildur limur í klobbanum’ færðu að gjöf Samantektarútgáfu Sjonna úr DV og Bílar&Sport á PDF formi - sem einnig er til sölu sem ‘alvöru’ bók á Lulu.com (smellið á Bókbúð Sjonna).

Nú einnig! Súper Sjonni Nr.1 á PDF formi!

Heimur Sjonna úr Bleiku&Bláu verður einnig í heild sinni á FaceBook - Yfir 40 sögur eru þegar online!

Af hverju þarf ég að skrá mig inná FaceBook - hvers vegna fæ ég ekki aðgang að þessari bók og B&B sögunum hérna á Heimur Sjonna?

Svarið er einfalt!

Ég, Ingi - höfundur Sjonna, vil sjá hverjir eru ’sannir Sjonnar’ og hafa tækifæri til þess að fá alvöru fítbakk frá lesendum um framtíð Sjonna, hugmyndir og stefnur í Sjonnamálum.

Verandi búsettur erlendis þar sem maður hittir lesendur sína á myndasögumessum er þetta mín leið til að komast í samband við íslenska lesendur - Face2Face …og svo er FaceBook skemmtileg leið til að hitta gamla vini og halda kontakt.

Endilega droppið við og fáið Sjonnabók að launum!

Kær kveðja frá Hollandinu Englandinu,
Ingi

Kæru lesendur 2

October 5th, 2007

Þó svo “þið” séum án Sjonna þá er því ekki svo farið að kauði sé alveg dauður og fjarri góðu gamni, síður en svo!
Á myndasögumessu sem fram fór í Houten í Hollandi, helgina 29-30.sept, var kynnt til sögunnar nýtt myndasögublað sem ber nafnið Strook - eða Strípa á íslenskunni.
strookpreview.jpg Blaðið samanstendur af dagblaða-strípum frá hollenskum höfundum. Okkar maður birtist þar á þessu ilhýra hrognamáli í fyrsta skipti, þrátt fyrir að vera saminn og teiknaður í Hollandi …svo gott sem… alla sína tíð- Það var því kominn tími til!

Persónulega er ég alveg yfir mig ánægður með hann á hollensku, finnst eins og þannig eigi hann að vera en dæmið sjálf um það:

———————————————————————————

Á öðrum nótum!

Þeir sem þekkja til mín vita að fyrir einum 10 árum stundaði ég nám við listdansskólann í Arnhem (bý þar enn).
Nú þetta mörgum árum síðar gefst mér einstakt tækifæri til að samtvinna dansinn og myndasögu-persónuna í mér.
En undanfarinn mánuð hef ég tekið þátt í verkefni þar sem myndasöguhöfundum og danshöfundum er sópað saman.
Um er að ræða verkefni á vegum Leikhúss í Tilburg og listdansskólans þar í borg.

Verandi “bæði” var mér skipað í hóp með sjálfum mér …en þar sem ég var orðinn frekar ryðgaður í danslistinni leitaði ég aðstoðar Heike Salzer (konu minnar) sem er alls ekki ókunn danslistinni – nánar um hana hér: www.salts.nl.

Útgangspunktur verkefnisins er svokölluð Guerrilla Marketing - eða ‘Skæru-markaðssetning’.

Afrakstur þessa samstarfs má sjá nú um helgina (6.okt) á aðal-göngugötunni í Tilburg og svo næstkomandi helgi einnig (11-13.okt).

Svo ef þið eigið leið um Tilburg í Hollandi – endilega skellið ykkur í verslunarleiðangur …og hver veit hvað þið munið sjá og upplifa :)

Dreifimiðum var komið á flesta public-staði í Tilburg en hann vísaði fólki á þessar tvær síður:
www.myspace.com/3marketeerswww.myspace.com/3passersby

 

Sjonni víkingur/hollensk sveitastúlka…

August 2nd, 2007
  • Hluti greinar sem ég pikkaði og póstaði á Hugi.is

…Þó Sjonni sé svo sannarlega al-íslensk framleiðsla þá vill svo til að hann er fæddur, saminn og teiknaður fyrst í Hollandi og nefndur í höfuðið á lágstéttar Hollendingum - sem oft eru kallaðir Sjonnar (Er í raun Johnny - borið fram; Sjonní).
Viking Dutch Sjonny
Fyrstu þrjú ár Sjonna í Bleiku&Bláu voru teiknuð í Hollandi og sama á við um allar þær sögur/persónur sem ég hef sett á blað (þær sögur má finna hér: www.zinzun.com).
Það hlaut því að koma að því að maður færi að einbeita sér að þeim hollenska markaði sem hér umlykur mig.

Síðan ég flutti hingað á ný (sept.2004) eftir stutt stopp heima á Fróni hef ég verið innlimaður í hollenska myndasögusamfélagið sem samanstendur af rúmlega 200 einstaklingum (eins og félagatalið stendur nú) og hefur það verið alveg ótrúlega upplífgandi og gefandi innlimun ;-)

Nú er svo komið að ég stefni á að koma Sjonna á framfæri í Hollandi þar sem kauði á með réttu heima og byrjar innreiðin með birtingu hans í nýju myndasögublaði (Strook) sem hefur göngu sína í lok september hér í flatalandi. Strook verður formlega gefið út á myndasögumessunni í Houten - www.stripdagen.nl - en ég mun einnig sitja þá messu á vegum blaðsins.

Mér og Sjonna hefur svo verið boðið af skipuleggjendum árlegrar myndasögumessu sem fram fer í Rijswijk (nálægt Rotterdam) þann 1&2 mars 2008 www.stripbeurs.com að taka þátt og kynna mig og mína framleiðslu, gestum og gangandi. Þar mun ég sem sagt sitja og teikna á tölvuna og plögga Sjonna eins og ég mögulega get (sjá mynd sem tekin var á myndasögumessu í Arnhem í maí).

Svo ef þú átt leið um Holland í byrjun mars þá hvet ég þig endilega til þess að líta við í Rijswijk og heilsa uppá Sjonna …og mig :-)

Auðvitað vill Sjonni karlinn birtast heima á Fróni en enn sem komið er hefur leit mín eftir áhugasömu blaði skilað litlum árangri og því heldur kauði á önnur mið ….ég held þó áfram að reyna :)

Bestu Sjonnasúkkulaðikveðjur frá Hollandi,
Ingi Jensson

Fréttaveita Sjonna

May 13th, 2007

Sjonny's Shop

[ More... ]